Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út í Víkingalottói kvöldsins. Fyrir fyrsta vinning voru í boði rúmir tveir milljarðar króna, en rúmlega 128 milljónir voru í boði fyrir annan vinning.
Einn fékk þriðja vinning hér á landi og fékk hann 5,3 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Golfklúbbinum Keili.
Vinningstölur kvöldsins: 17-18-22-26-33-34.
Víkingatalan: 7
Enginn var með fimm réttar jókertölur í réttri röð. Þrír voru hins vegar með fjórar réttar í réttri röð og fær hver þeirra 100 þúsund krónur.
Jókertölur kvöldsins: 4-9-5-6-2.