Segja bætur í sögulegu lágmarki

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun stjórnvalda að láta atvinnuleysisbætur ekki fylgja þróun lægstu launa og krefst þess að atvinnuleysisbætur verði hækkaðar til samræmis við lægstu laun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Þar kemur einnig fram að eiginfjárstaða Atvinnuleysistryggingasjóðs stefni í að verða jákvæð um 25 milljarða króna á árinu og því sé sjóðurinn vel í stakk búinn að standa undir hækkun bóta.

Bent er á að í kjarasamningum ASÍ fyrir tveimur árum hafi verið samið um hækkanir á lægstu launum í landinu, þannig að þau myndu hækka í áföngum til ársloka 2018 í kr. 300.000 á mánuði. Það hafi verið krafa ASÍ í viðræðum við þáverandi ríkisstjórn að bætur almannatrygginga og atvinnuleysisbætur myndu haldast í hendur við lágmarkslaun en því var hafnað.

„Alþingi ákvað síðar að hækka hámarksbætur almannatrygginga vegna ársins 2017 og tryggja að þær fylgi þróun lágmarkslauna. Engin sambærileg ákvörðun hefur verið tekin um hækkun atvinnuleysisbóta og eru þær nú lægri sem hlutfall af lágmarkslaunum en nokkru sinni áður eða 78%,“ segir í tilkynningunni.

„Í lögum er skýrt kveðið á um að atvinnuleysisbætur bæturnar eigi að fylgja þróun kaupgjalds í landinu. Ráðherra vinnumarkaðsmála og ríkisstjórnin fer því á svig við lög og heggur þar sem síst skyldi  í árferði sem hefur verið kallað lengsta góðærisskeið í manna minnum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert