Andlát: Sigurður Pálsson

Sigurður Pálsson, skáld og rithöfundur.
Sigurður Pálsson, skáld og rithöfundur. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Sigurður Pálsson, rithöfundur, er látinn, 69 ára að aldri. Sigurður lést á líknardeild Landspítalans í gær eftir erfið veikindi.

Sigurður fæddist 30. júlí 1948 á Skinnastað í N-Þingeyjarsýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði frönskunám í Toulouse og París. Þá nam hann leikhúsfræði og bókmenntir í Sorbonne. Sigurður lauk einnig námi í kvikmyndasleikstjórn.

Sigurður fékkst við ýmis störf í gegnum tíðina. Hann starfaði meðal annars sem fréttaritari, leiðsögumaður, kennari og vann auk þess við sjónvarp og kvikmyndir. Ritstörf og þýðingar einkenndu þó að mestu leyti ævistarf hans. Sigurður var forseti Alliance Française um skeið og formaður Rithöfundasambands Íslands.

Sigurður var einn af Listaskáldunum vondu 1976. Fjölmargar ljóðabækur hafa birst á prenti eftir Sigurð, sú fyrsta kom út 1975 undir heitinu Ljóð vega salt. Ljóðabókin Ljóð námu völd var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1993.

Árið 2007 hlaut Sigurður hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Minnisbók og hafði þá áður verið tilnefndur fyrir ljóðabækurnar Ljóðlínuskip (1995) og Ljóðtímaleit (2001). Sigurður hefur einnig ritað skáldsögur og fengist við leikritasmíð, skrifað sjónvarps- og útvarpshandrit og óperutexta. Ljóðabækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg erlend tungumál, m.a. búlgörsku og kínversku. Árið 1994 kom út tvítyngd útgáfa ljóða hans hjá Editions de la Différence í París í þýðingu Régis Boyer, deildarforseta Skandínavísku deildar Sorbonne-háskóla. Stórt úrval ljóða Sigurðar í enskri þýðingu árið 2014 undir titlinum Inside Voices, Outside Light.

Sigurður hlaut fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín um ævina. Hann var valinn borgarlistamaður Reykjavíkurborgar á tímabilinu 1987-1990, var veittur riddarakross Orðu lista og bókmennta (Chevalier de l'Ordre des Arts et des Lettres) af menningarmálaráðherra Frakklands árið 1990, og Frakklandsforseti sæmdi hann riddarakrossi Frönsku heiðursorðunnar (Chevalier l'Ordre National du Mérite) árið 2007. Hann hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2016. Þá veittu Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands Sigurði Maístjörnuna fyr­ir ljóðabók sína Ljóð muna rödd.

Á nýársdag 2017 veitti forseti Íslands Sigurði heiðurs­merki hinn­ar ís­lensku fálka­orðu fyrir framlag til ís­lenskra bók­mennta og menn­ing­ar.

Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Kristín Jóhannesdóttir, kvikmyndaleikstjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert