Gáfu fósturgreiningardeild tvö ómtæki

Hringskonur færðu fósturgreiningardeild Landspítala tvö ómtæki að gjöf.
Hringskonur færðu fósturgreiningardeild Landspítala tvö ómtæki að gjöf. Ljósmynd/Landspítalinn

Kvenfélagið Hringurinn færði fósturgreiningardeild Landspítala tvö ómtæki að gjöf og voru þau afhent formlega í þakkarboði sem haldið var Hringskonum í dag.

Tækin voru af gerðinni General Electric og nemur andvirði tækjanna nemur 21 milljón króna.

Árlega eru framkvæmdar á milli 10-11 þúsund ómskoðanir á fósturgreiningardeild Landspítalans og á hverju ári  greinast 50 til 70 fósturgallar og skiptir þá máli að hafa góðan tækjabúnað.

Þétt eftirlit er með fóstrum sem eiga erfitt uppdráttar í móðurkviði m.a. vegna vaxtarseinkunar eða veikinda móður.

Í fréttatilkynningu frá Landspítalanum segir að nýju tækin auðveldi til muna flóknari ómskoðanir, líkt og blóðflæðimælingar bæði í naflastreng og í kolli fósturs þar sem tækin eru mun betri en þau sem fyrir voru.

Þá verði auk þess hægt að fjölga skoðunarstofum úr fimm í sex með tilkomu nýju tækjanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert