Árekstur varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Álfheima á sjöunda tímanum í kvöld þegar tveir bílar skullu saman.
Slökkviliðinu barst tilkynnt um einn meðvitundarlausan mann eftir slysið, en hann var kominn til meðvitundar áður en sjúkrabíll kom á staðinn og segir slökkviliðsmaður á vakt því hafa farið betur en áhorfðist.
Draga þurfti annan bílinn af slysstað með dráttarbíl.