Rétt eftir miðnætti þurfti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að flytja mann, sem var í mjög annarlegu ástandi sökum neyslu sveppa, á slysadeild Landspítalans.
Eftir stutta bið eftir aðstoð læknis varð sá dópaði mjög órólegur og réðst ekkert við hann. Því þurfti lögregla að yfirbuga manninn og flytja hann á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann er vistaður í fangaklefa. Einn lögreglumaður slasaðist í átökunum.