Spáð er stormi á miðhálendinu, en einnig við norðausturströndina um tíma í dag og við suðurströndina annað kvöld. Búast má við mikilli rigningu á Suðausturlandi og á Austfjörðum fram eftir degi, en dregur síðan úr vætunni.
Hvöss suðaustanátt á austanverðu landinu í dag, en hægari vestan til. Snýst í suðvestanstrekkingsvind með skúrum eftir hádegi, fyrst suðvestanlands. Fremur hæg suðaustanátt og úrkomulítið á morgun, en hvessir og fer að rigna syðst um kvöldið. Áfram suðaustanáttir með rigningu næstu daga, síst þó fyrir norðan, en fremur hlýtt í veðri.
Veðurhorfur næstu daga:
Á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt og skúrir, 15-23 m/s S-til undir kvöld, hvassast syðst og fer að rigna, en hægari norðan heiða og lengst af bjartviðri. Hiti 8 til 13 stig.
Á þriðjudag:
Suðaustan 10-18 m/s og talsverð, jafnvel mikil rigning A-til, hvassast á annesjum, en annars mun hægari og úrkomuminni. Hiti víða 9 til 14 stig.
Á miðvikudag:
Ákveðin suðaustanátt með talsverðri eða mikilli rigningu rigningu á S-verðu landinu, en mun úrkomuminna fyrir norðan. Áfram fremur hlýtt í veðri.
Á fimmtudag:
Suðaustanátt og áfram rigning fyrir austan, en annars þurrt að kalla og milt veður.
Á föstudag og laugardag:
Útlit fyrir austlæga átt með vætu víða á landinu og heldur kólnandi veður.