Rok og rigning í kortunum

Veðurstofa Íslands

Búast má við stormi við suðurströndina annað kvöld og fer þá að rigna aftur og rignir talsvert suðaustanlands fram á næstu helgi. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin

Suðlæg átt, 8-13 m/s og skúrir, en léttskýjað NA-til. Heldur hægara og úrkomuminna í nótt. Vaxandi suðaustanátt á morgun, 15-23 m/s og fer að rigna S-til annað kvöld, hvassast við ströndina, en mun hægari og bjartviðri fyrir norðan. Hiti 7 til 15 stig að deginum, hlýjast NA-lands.

Á þriðjudag:

Suðaustan 10-18 m/s, hvassast við A-ströndina og víða talsverð rigning, mikil rigning SA-til, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 9 til 14 stig að deginum. 

Á miðvikudag:
Suðaustan 13-20 m/s og talsverð eða mikil rigning víða A-til, en mun hægara og úrkomulítið fyrir vestan. Dregur mjög úr vindi og vætu um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast NA-lands. 

Á fimmtudag:
Austlæg átt, 8-13 m/s og dálítil rigning A-til, en annars skýjað með köflum, þurrt og milt veður. 

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir stífar austlægar áttir með vætu í flestum landshlutum og lítið eitt svalara veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert