Orbis et Globus vígt í Grímsey

Listaverkið, Orbis et Globus - Hringur og kúla - er …
Listaverkið, Orbis et Globus - Hringur og kúla - er nyrst í Grímsey. mbl.is/Ragnar Hólm Ragnarsson

Listaverkið „Orbis et Globus“ – Hringur og kúla – var vígt í Grímsey fyrr í dag. Það var byggt eftir vinningstillögu Kristins E. Hrafnssonar og Studio Granda í samkeppni sem haldin var um nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn. Verkið er staðsett nyrst á eynni.

Listaverkið er kúla, þrír metrar í þvermál, og færist hún í samræmi við hreyfingar heimskautsbaugsins þar til hann yfirgefur eyjuna árið 2047 eða því sem næst.

Forsaga málsins er sú, segir á vef Akureyrar, að tillaga Kristins og Studio Granda sigraði í samkeppni um nýtt kennileiti sem efnt var til undir lok ársins 2013 og voru úrslit í samkeppninni kunngjörð í mars 2014. „Nú loks er kúlan komin á sinn stað og var hún vígð í blíðskaparveðri á heimskautsbaugnum að viðstöddum fjölda gesta.“

Ávörp fluttu Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Kristinn E. Hrafnsson listamaður og Elías Bj. Gíslason frá Ferðamálastofu. Þorkell Ásgeir Jóhannsson lék á básúnu fyrir og eftir vígslu verksins og eftir ávarp Kristins blésu þeir félagar Kristinn og Steve sápukúlum í kringum verkið.

Þorkell Ásgeir Jóhannsson blæs í básúnu sína við athöfnina í …
Þorkell Ásgeir Jóhannsson blæs í básúnu sína við athöfnina í dag. mbl.is/Ragnar Hólm
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Steve Christer arkitekt og …
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Steve Christer arkitekt og listamaðurinn, Kristinn E. Hrafnsson. mbl.is/Ragnar Hólm
Steve Christer, arkitekt hjá Studio Granda, og listamaðurinn, Kristinn E. …
Steve Christer, arkitekt hjá Studio Granda, og listamaðurinn, Kristinn E. Hrafnsson, sögðu viðstöddum frá kúlunni stóru og blésu síðan sápukúlum allt í kringum hana. mbl.is/Ragnar Hólm
mbl.is/Ragnar Hólm
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert