Suðaustanáttir og vætutíð í kortunum að sögn veðurfræðings Veðurstofu Íslands og má reikna með úrhelli á suðaustanverðu landinu frá og með morgundeginum. Hiti verður þó með skárra móti og ekki að sjá að kólni neitt í bili.
Veðurspá fyrir næstu daga
Fremur hæg suðlæg átt og víða dálitlar skúrir, en léttskýjað NA-til. Vaxandi suðaustanátt eftr hádegi, 15-23 m/s og fer að rigna S-til í kvöld, hvassast við ströndina, en mun hægari og bjartviðri fyrir norðan. Suðaustan 8-15 og talsverð eða mikil rigning SA-til á morgun, en annars úrkomuminna. Lægir V-til seinni partinn. Hiti 7 til 15 stig að deginum, hlýjast NA-lands.
Á þriðjudag:
Suðaustan 10-18 m/s, hvassast við A-ströndina og víða talsverð rigning, mikil rigning SA-til, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 9 til 14 stig að deginum.
Á miðvikudag:
Suðaustan 13-20 m/s og talsverð eða mikil rigning víða A-til, en mun hægara og úrkomulítið fyrir vestan. Dregur mjög úr vindi og vætu um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast NA-lands.
Á fimmtudag:
Austlæg átt, 8-13 m/s og dálítil rigning A-til, en annars skýjað með köflum, þurrt og milt veður.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir stífar austlægar áttir með vætu í flestum landshlutum og lítið eitt svalara veður.