Ný ferja í höndum Vestmannaeyjabæjar

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Samgönguráðuneytið fer þess á leit við Vegagerðina að stofnunin geri drög að samningi þar sem gert er ráð fyrir að rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju sé í höndum Vestmannaeyjabæjar. Óskað er eftir því að fyrstu drög að samningi liggi fyrir og verði kynnt ráðuneytinu 5. október. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í dag. 

„Bæjarráð fagnar þessu skrefi og ítrekar vilja sinn til að axla ábyrgð í samgöngum milli lands og Eyja.“ Þetta kemur fram í fundargerðinni. 

Hagnaður af rekstrinum verði nýttur til að lækka fargjöld

Samþykkt var að farnar verði allt að 8 ferðir í sumaráætlun og 6 ferðir í vetraráætlun. Einnig verður siglt alla daga ársins og a.m.k. 2 ferðir á jóladag og nýársdag og að lágmarki 4 ferðir aðra hátíðardaga. Þá verða greidd sömu fargjöld fyrir farþega og einkabíla sama hvort siglt verður í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Ekki verði um hækkun að ræða fyrir þá sem notast við afsláttarfargjöld. 

Núverandi ferja verður áfram til taks og nýtt t.d. ef upp koma bilanir eða viðhald. Tekið verður í notkun nýtt bókunarkerfi þar sem aukin áhersla verður lögð á hagsmuni heimamanna og fyrirtækja í Vestmannaeyjum og til greina kemur að taka frá pláss á bíladekki fyrir heimamenn. Framlög ríkisins ásamt tekjum hvers árs skulu standa undir kostnaði við rekstur. Allur mögulegur hagnaður af rekstrinum verði nýttur til að lækka fargjöld og auka þjónustu. 
Áhersla verði lögð á markvissar rannsóknir á Landeyjahöfn með það að markmiði að tryggt verði nægt dýpi og innsiglingin bætt frá því sem nú er. Þetta kemur einnig fram í fundargerðinni. 

Bæjarráðið samþykkti að skipa Pál Guðmundsson útgerðarstjóra og Grím Gíslason vélstjóra í undirbúningshóp. Þeir munu meðal annars annast samningagerð og veita bæjarstjórn og embættismönnum faglegan stuðning við undirbúning. Einnig var samþykkt að fela Lúðvík Bergvinssyni hjá Bonafide að veita lögfræðilega ráðgjöf og Yngva Harðarsyni hjá Analityca að veita rekstrarhagfræðilega ráðgjöf. 

Hér er fundargerð bæjarráðs í heild sinni.

Herjólfur siglir milli lands og Eyja.
Herjólfur siglir milli lands og Eyja. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert