Í vímu á miklum hraða

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för ökumanns á Vesturlandsvegi, við Úlfarsfell, sem reyndist aka á 113 km hraða þar sem heimilt er að keyra á 80 km/klst. 

Ökumaðurinn, sem var stoppaður um hálfeitt í nótt, er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Jafnframt eru ökuréttindi hans útrunnin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert