Lögbannsmál geta tekið nokkrar vikur

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Glitnir HoldCo hefur eina viku til að fá útgefna réttarstefnu af hérðasdómi til að höfða staðfestingarmál um lögbannið. Eftir að stefna hefur verið gefin út er það héraðsdóms að ákveða þingfestingu í málinu en eftir þingfestingu er gefinn frestur til að skila inn öllum viðkomandi gögnum og þá fær dómari málinu úthlutað. Engin gögn eru til um meðal málsmeðferðartíma slíkra mála og þau njóta ekki forgangs eða flýtimeðfeðferðar í dómkerfinu. 

„Ef ætlunin er að halda málinu til streitu þá þarf að óska eftir því að héraðsdómur gefi út stefnu. Eftir að það hefur verið gert er þingsfesting ákveðin en alla jafna er hún inna við viku frá útgáfu stefnu. Eftir það fer málið í sinn farveg fyrir reglulegu þingi og fer eftir því hversu langan tíma það tekur að skila greinargerð. Þegar öll gögn eru komin fær dómari málinu síðan úthlutað þannig að þetta er ekki dagaspursmál,“ segir Ingimundur Einarsson, dómstjóri við héraðsdóm Reykjavíkur. 

Eins og sakir standa er málið því í höndum Glitnis HoldCo líkt og fram kom í fréttum fyrr í dag. 

Frétt mbl.is „Við finn­um fyr­ir mikl­um stuðningi“

Engin flýtimeðferð 

Að því gefnu að stefna verði gefin út eftir viku er því útlit fyrir að lögbannsmálið verði þingfest eftir um tvær vikur en þá veltur það á aðilum málsins og fleiri atriðum hversu langur tími líður þar til málið fær efnislega umfjöllun. 

„Lögbannsmál eru ekki þess eðlis að þau fái sérstaka flýtimerðferð enda kveða lög ekki á um slíkt,“ segir Ingimundur. „Ég á ekkert viðhlítandi svar við því hversu langan tíma lögbannsmál taka þar sem við höfum engar meðaltalstölur um málsmeðferðartíma í slíkum málum. Það veltur því á aðilum sem eiga báðir rétt á að gera greina fyrir sínu máli, lögmönnum þeirra og verkefnastöðu þess dómara sem fær málið til úrlausnar.“

Gæti staðið í þrjár vikur eftir synjun

Synji héraðsdómur staðfestingarmálinu um lögbann á umfjöllun úr Glitnisskjölunum mun lögbannið standa í þrjár vikur frá dómsuppsögu nema Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um synjun um staðfestingu lögbannsins áður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert