Rafmagnslaust

Rafmagn fór af stórum hluta Kópavogs, m.a. á Kársnessvæðinu um áttaleytið í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum er um bilun í háspennulínu að ræða.

Unnið er að viðgerð og búist er við að rafmagn verði komið á aftur innan skamms.

Uppfært kl. 20:43

Rafmagn er nú komið á að nýju í Kópavogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert