Styrkja þjónustu við þolendur ofbeldis

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur veitt Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri samtals 15 milljónir króna til að fjármagna stöður sálfræðinga sem sinna þjónustu við þolendur ofbeldis.

Framlögin nema 5 milljónum króna til Sjúkrahússins á Akureyri og 10 milljónum króna til geðsviðs Landspítalans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands. Þar segir að þetta sé þriðja árið í röð sem sjúkrahúsunum er veitt sérstök framlög í þessu skyni. Ný samstarfsyfirlýsing byggð á þeirri fyrri var undirrituð í mars á þessu ári þar sem fjallað er um víðtækt samráð á landsvísu í því skyni að efla aðgerðir gegn ofbeldi í íslensku samfélagi og afleiðingum þess. 

Við mótun þeirrar þjónustu sálfræðinga sem framlag félags- og jafnréttismálaráðherra tekur til, hefur verið lögð áhersla á aukna aðstoð, ráðgjöf og meðferð fyrir þolendur eldri brota ofbeldis. Áskoranirnar hafa verið margvíslegar, þar sem áfallasaga þeirra sem í hlut eiga er oft flókin eftir að þolendur hafa sætt ofbeldi til fjölda ára.

„Allt ofbeldi skilur eftir sig áverka og oft varanleg ör, hvort sem um er að ræða andlegt eða líkamlegt ofbeldi. Það hefur sýnt sig að meðferð hjá sálfræðingi líkt og hér um ræðir getur skipt sköpum um það hvernig fólki reiðir af og hvort það nær að vinna úr afleiðingum ofbeldisins á fullnægjandi hátt. Ég tel því mjög mikilvægt að styðja áfram við þessa þjónustu á sjúkrahúsunum tveimur,“ segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert