Grunaðir um ölvunar- og fíkniefnaakstur

mbl.is/Hjörtur

Bifreið var stöðvuð í Hraunbæ um hálfeittleytið í nótt. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Á þriðja tímanum í nótt var bifreið stöðvuð í Klukkurima. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur og akstur án réttinda.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert