Fundu umtalsvert magn fíkniefna og sveðju

Fíkniefni og vopn fundust við húsleitina.
Fíkniefni og vopn fundust við húsleitina. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Þrír voru handteknir á Suðurnesjum í vikunni í kjölfar húsleitar sem Lögreglan á Suðurnesjum fór í, með aðstoð sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Sterkur grunur leikur á því að sá sem í húsinu dvaldi hafi stundað fíkniefnasölu, en umtalsvert magn fíkniefna fannst við húsleitina.

Þegar lögregla mætti á vettvang var ljóst að mikil fíkniefnaneysla hafði átt sér stað í íbúðinni, þar sem karlmaður á þrítugsaldri dvaldi í óþökk húseiganda. Við húsleitina fundust meint amfetamín, e – töflur, kannabisefni, sterar og fleiri efni víðs vegar um íbúðina ásamt vog og sölupokum. Þá fundust Taser rafstuðtæki og sveðja.

Grunur hafði leikið á að maðurinn væri vopnaður og var sérsveitin því fengin til aðstoðar við húsleitina. Hann var handtekinn ásamt tveimur öðrum er voru gestkomandi á staðnum og fundust einnig fíkniefni hjá hinum síðarnefndu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert