Þuríður Harpa nýr formaður ÖBÍ

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, nýr formaður ÖBÍ.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, nýr formaður ÖBÍ. Ljósmynd/ÖBÍ

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, varaformaður Sjálfsbjargar, var kjörin nýr formaður Öryrkjabandalags Íslands á aðalfundi samtakanna í morgun. Þuríður Harpa tekur við af Ellen Calmon, sem hefur verið formaður bandalagsins frá árinu 2013.

Þuríður Harpa fékk 68 atkvæði í formannskjörinu en mótframbjóðandi hennar, Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland, fékk 58 atkvæði.

„Ég mun hafa samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi í mínum störfum,“ er haft eftir Þuríði Hörpu í fréttatilkynningu frá ÖBÍ.

„Samninginn þurfum við að fá lögfestann til að hann veiti okkur þau réttindi og þann slagkraft sem þarf í mannréttindabaráttunni. Fátækt, útskúfun, mismunun eða misrétti á ekki að líðast. Þá legg ég áherslu á lögfestingu á NPA (notendastýrðri persónulegri aðstoð) og baráttu fyrir bættu kjörum örorkulífeyrisþega, fatlaðs fólks og langveikra,“ segir Þuríður Harpa einnig.

Frá aðalfundi Öryrkjabandalagsins í morgun.
Frá aðalfundi Öryrkjabandalagsins í morgun. Ljósmynd/ÖBÍ

Þuríður Harpa er með BA-próf í grafískri hönnun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Auk þess lauk hún diplómanámi í fötlunarfræðum frá Háskóla Íslands 2015. Síðustu þrettán ár hefur hún gegnt starfi framkvæmdastjóra prentsmiðju og auglýsingastofu á Sauðárkróki og meðal annars gefið vikulega út svæðisfréttablað og dagskrárblað auk ýmissa prent- og hönnunarverkefna.

Frá 2011 hefur Þuríður Harpa verið formaður Sjálfsbjargar í Skagafirði og er í dag varaformaður landssambands Sjálfsbjargar. Þá situr hún einnig í stjórn Sjálfsbjargarheimilisins. Hún hefur einnig starfað í vinnuhópum á vettvangi ÖBÍ þar sem fjallað hefur verið um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Þá hefur Þuríður Harpa átt sæti í málefnahópi ÖBÍ um sjálfstætt líf og komið fram á ýmsum málþingum og ráðstefnum um málefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert