Mörg dæmi um kynferðisofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar

Hafdís þekkir kynferðisofbeldi af eigin raun.
Hafdís þekkir kynferðisofbeldi af eigin raun. Mynd/Skjáskot Stöð 2

Hafdís Inga Hinriksdóttir, fyrrverandi landsliðskona í handbolta, segir fjölmörg dæmi um kynferðisofbeldi og kynferðislega áreitni innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Frá þessu greindi hún í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2. Hafdís, sem starfar nú sem sérfræðingur í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, þekkir kynferðisofbeldið af eigin raun.

„Ég lenti oft í því að þjálfararnir mínir voru að reyna við mig. Ég varð fyrir kynferðisofbeldi af hálfu fyrrum landsliðsmanns í handbolta þegar ég var 16 ára gömul þar sem hann nýtti sína yfirburðastöðu gagnvart mér,“ sagði Hafdís.

Hún sagði engum frá ofbeldinu á sínum tíma, hún hefði ekki þorað því, en hún opnaði sig fyrir nokkrum árum. „Maður var alltaf hræddur um að manni yrði hent úr liðinu eða að draumar manns sem afreksíþróttamaður yrðu eyðilagðir á einhvern hátt.“

Segir ofbeldið alltaf snúast um valdamisræmi

Hafdís hefur rannsakað ofbeldi í íþróttum og hefur komast að því að sérstök hætta er á því að afreksíþróttafólk verði fyrir andlegu eða annars konar ofbeldi af hálfu þjálfara. Ofbeldið snúist þá alltaf um valdamisræmi.

„Andlegt ofbeldi er auðvitað mjög stór partur af íþróttum, því miður. Með þetta að maður þarf alltaf að vera svo sterkur andlega og má ekki sýna neina veikleika eða eitthvað þannig því þá er maður bara álitin sem aumingi,“ segir Hafís. Afreksfólk eigi því frekar á hættu að verða fyrir ofbeldi, enda sé það tilbúið að gera nánast hvað sem er til að ná árangri.

Hún segist vita til þess að til sé fjöldinn allur af málum sem ekki hafa komið upp á yfirborðið. Hún hefur meðal annars fengið að heyra af því á fyrirlestrum sínum, en hún var fengin af Íþróttasambandi Íslands til að halda fyrirlestra hjá íþróttafélögum fyrir stjórn og þjálfara um birtingarmyndir ofbeldis, vegna reynslu sinnar.

„Mín upplifun er sú að það er veruleg þörf á því að fara með fræðslu og bara að það verði gerð allsherjarbylting innan íþróttanna. Þetta er ég ekki að segja til að fólk upplifi íþróttirnar sem einhvern hættulegan stað. Alls ekki það. Heldur bara við viljum að íþróttirnar verði ennþá betri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert