Stakk af frá umferðaróhappi

Ökumaður stakk af frá umferðaróhappi á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar á fjórða tímanum í nótt. Hann virðist síðan hafa séð sig um hönd og kom nokkru síðar aftur akandi á vettvang.

Segir í dagbók lögreglu að þrír erlendir einstaklingar hafi verið handteknir og vistaðir í fangageymslu vegna málsins.

Þá neitaði ökumaður, sem lögregla reyndi að hafa afskipti af við Arnarbakka, að stöðva bíl sinn. Jók hann hraðann og reyndi að koma sér undan sem varð til þess að lögregla ók utan í bifreið hans við Bakkabraut þar sem eftirförinni lauk.

Var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu, en reyndist vera undir áhrifum fíkniefna.

Þá var óskað aðstoðar lögreglu í miðborginni um þrjúleytið í nótt þar sem ráðist hafði verið á öryggisvörð frá Securitas. Er málið í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert