BL hefur tilkynnt um innköllun á Dacia Duster-bifreiðum, en ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að flauta hætti að virka vegna spennumismunar. Þetta segir í tilkynningu á vef Neytendastofu.
BL ehf. mun senda eigendum viðkomandi bifreiða bréf vegna þessa. Eigendum bíla sem fluttir hafa verið inn af öðrum en BL er bent á að hafa samband við BL til að kanna hvort þeirra bíll falli undir þessa innköllun.