Rúta náði ekki beygjunni

mbl.is/Hjörtur

Umferðaróhapp varð á Mývatnsöræfum við vestari afleggjarann að Dettifossi þegar rúta með ferðamenn um borð náði ekki beygjunni.

Rútan þverar hringveginn að hluta til og er því aðeins möguleiki fyrir litla bíla að komast framhjá eins og er.

Að sögn lögreglunnar á Húsavík er ekki vitað um meiðsli á fólki. Rútan fór að hluta til út af veginum en valt ekki og eru komnir aðilar frá Mývatnssveit á staðinn til að losa hana í burtu.

Lögreglunni barst tilkynning um atvikið á fjórða tímanum í dag.

Búist er við töluverðum umferðartöfum vegna óhappsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert