Beit annan farþega

mbl.is/Aðsent

Lögreglumenn úr flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum handtóku farþega um borð í flugvél á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt sunnudagsins.

Konan, sem var ofurölvi, hafði látið öllum illum látum í flugvélinni á leiðinni til Íslands og meðal annars ráðist á flugfreyju með ofbeldi. Þegar tveir farþegar gengu á milli beit konan annan þeirra í handlegginn og klóraði hinn. Þeim tókst þó að koma henni í sæti og var hún bundin við það þar til að lögreglumenn komu um borð.

Við handtöku veitti hún mótspyrnu og þurfti að færa hana í lögreglutök og síðan í handjárn áður en hún var flutt á lögreglustöð. Hún gerðist sek um ölvun á almannafæri, líkamsárás og brot á lögum um öryggi loftfara, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert