59 milljónir söfnuðust fyrir Hjartavernd

Mynd/Af síðu Hjartaverndar

Tæpar 59 milljónir söfnuðust í landsöfnun Hjartarverndar í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Tilefni söfnunarinnar er að Hjartavernd hefur þróað nýtt verkfæri, svokallað viðvörunarkerfi sem getur greint æðakölkunarsjúkdóm á frumstigi á mun nákvæmari hátt en hingað til hefur verið mögulegt.

Með viðvörunarkerfinu má koma í veg fyrir varanlegar líffæraskemmdir í hjarta og heila sem orsakast að stórum hluta af æðakölkun, að segir á heimasíðu Hjartaverndar. Markmiðið er að uppræta uppræta að miklu leyti ótímabær áföll af völdum hjarta- og æðasjúkdóma á Íslandi. 

„Hjarta- og æðasjúkdómar eru helsta ástæða ótímabærra dauðsfalla í íslensku samfélagi. Rúmlega 200 manns á ári látast hér fyrir aldur fram vegna sjúkdóma í hjarta- og æðakerfi. Að auki lifa tugir þúsunda einstaklinga með afleiðingar áfalla sem leiða til verulegra skertra lífsgæða.  Með viðeigandi forvarnaraðgerðum hefði verið hægt að koma í veg fyrir mikinn meirihluta þessara áfalla og það væri stór ávinningur fyrir þá einstaklinga sem haldast heilbrigðir fram á efri ár en einnig gríðarlegur sparnaður fyrir heilbrigðiskerfið og samfélagið allt,“ segir á heimasíðunni. 

Söfnun Hjartaverndar ber yfirskriftina Finnum fólk í lífshættu og stendur hún til 24. nóvember næstkomandi.

Þeir sem hafa áhuga á að leggja söfnuninni lið geta hringt eða sent sms í:

9071502 fyrir 2.000.- kr.

9071505 fyrir 5.000.- kr.

9071508 fyrir 8.000.- kr.

Einnig er hægt að leggja styrktarupphæð beint inn á bankareikning söfnunarinnar  0111-26-4013 kt. 600705-0590

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert