Ákærðir fyrir brot á lögum um náttúruvernd

Mennirnir höfðust við í neyðarskýli í Hornvík á Hornströndum. Myndin …
Mennirnir höfðust við í neyðarskýli í Hornvík á Hornströndum. Myndin er frá Hesteyri. mbl.is/Árni Sæberg

Þrír menn hafa verið ákærðir af embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum fyrir að hafa í fyrra brotið gegn lögum um náttúruvernd og auglýsingu um friðland á Hornströndum með því að hafa laugardaginn 28. Maí í fyrra komið í friðlandið og dvalið þar í vikutíma án þess að tilkynna Umhverfisstofnun um ferðalag sitt.

Mennirnir komu í land í Hornvík, en málið komst í hámæli í fyrra þegar eigandi ferðaþjónustu á Vestfjörðum, sem var mættur í Hornvík til að undirbúa komandi ferðatímabil, kom að mönnunum með vopn og ýmsan veiðibúnað á staðnum. Öll veiði er bönnuð í friðlandinu.

Greint var frá því í janúar að fallið hafi verið frá ákæru gegn mönnunum, en þá hafði verið ákveðið að beita þá sektarmeðferð. Karl Ingi Vilbergsson, hjá lögreglunni á Vestfjörðum, staðfestir í samtali við mbl.is að mennirnir hafi hins vegar neitað að skrifa undir slíka sektarmeðferð og því hafi verið ákært í málinu. Það er aftur á móti ekki ákært fyrir veiði í friðlandinu.

Í síðustu viku féll dómur í Héraðsdómi Vestfjarða í meiðyrðamáli þar sem annar ferðaþjónustuaðili, sá sem flutti mennina og veiðidót þeirra til Hornvíkur, hafði kært þann sem tilkynnti um hin meintu brot. Var sýknað í því máli.

Aðalmeðferð í máli þremenninganna fer fram í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert