Sýknaður eftir ummæli um veiðiþjófnað

Mynd sem Rúnar tók þegar hann kom að mönnunum í …
Mynd sem Rúnar tók þegar hann kom að mönnunum í Hornvík í fyrra. Strandferðir höfðu flutt mennina á staðinn og til baka. Ljósmynd/Rúnar Karlsson

Rúnar Karlsson, einn eigenda ferðaþjónustufyrirtækisins Borea Travel á Vestfjörðum hefur verið sýknaður af kæru um meiðyrði sem lögð var fram af  ferðaþjónustufyrirtækinu GJÁ útgerð sem einnig er þekkt sem Standferðir. Var kæran lögð fram vegna umfjöllunar um meintan veiðiþjófnað í Hornvík á Hornströndum í fyrra.

Í umfjöllun um málið á mbl.is var greint frá því að Rúnar hefði komið að þremur mönnum í neyðarskýli í Hornvík þar sem þeir voru með vopn og önnur veiðitæki. Þá lá selshræ í fjörunni sem vaktað var hreyfimyndavél.

Eftir að málið kom upp sendu Strandferðir frá sér tilkynningu um málið og sögðu mennina ekki á sínum vegum. Það hafi aðeins flutt þá í Hornvík og sótt þá viku síðar. Aftur á móti hafi mistök verið gerð um að tilkynna ekki um ferðina í friðlandið á Hornströndum.

Rúnar sagði í framhaldsfrétt af málinu að skýringar Strandferða stæðust enga skoðun, enda hafi starfsmenn Strandferða verið hið minnsta með veiðimönnunum í sólarhring og verið hjá mönnunum þegar Rúnar bar að garði. Augljóst hafi verið hvað var á seiði.

Í kæru málsins er þess krafist að ummæli sem tengdust veiðiþjófnaði væru dæmd dauð og ómerk auk ummæla Rúnars um að skýringar Strandferða standist ekki skoðun og hafi verið aumt yfirklór. Það skal tekið fram að fyrirtækið er ekki talið hafa brotið af sér.

Í dómi Héraðsdóms Vestfjarða sem kveðinn var upp í síðustu viku kemur fram að hluti ummælanna sem kært sé fyrir séu ekki Rúnars sjálfs og því ekki hægt að dæma hann fyrir þau. Þá verði að telja önnur ummæli skoðun Rúnars en ekki staðreyndir. Vísað er til tjáningarfrelsisákvæðis í stjórnarskránni og að ummæli Rúnars í fréttum mbl.is hafi ekki verið í andstöðu við réttindi hans til að tjá sig. Feli ummælin í sér „gildisdóma og að efni ummælanna verði ekki talið vera þess eðlis að það feli í sér ærumeiðandi aðdróttun eða móðgun í garð stefnanda,“ segir í dóminum.

Er Rúnar því einnig sýknaður af kröfu um skaðabætur, en farið var fram á 2 milljónir auk þess að hann myndi greiða fyrir birtingu dómsins opinberlega sem ekki er fallist á heldur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert