Bilun í sendi Vodafone í Reykhólasveit

Bilun er á sjónvarpssendi Vodafone í Reykhólasveit.
Bilun er á sjónvarpssendi Vodafone í Reykhólasveit. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sjónvarpsþjónusta Digital Ísland á vegum Vodafone hefur legið niðri víða í Reykhólasveit og á nærliggjandi bæjum síðan í gær. „Bilunin nær jafnvel eitthvað inn á Búðardalinn, en það komu tilkynningar frá þessu svæði í gær,“ segir Guðfinnur Sigurvinsson, verkefnastjóri samskiptamála hjá Vodafone í samtali við mbl.is.

Um er að ræða bilun í sendi og hefur mannskapur frá Vodafone verið sendur á staðinn. Greiningarvinna á biluninni stendur nú yfir en ekki er unnt að greina frá hversu langan tíma viðgerðin mun taka.

„Það er unnið eins hratt og hægt er. Tæknin er flókin og það þarf að gefa þessu ákveðinn tíma í greiningarvinnu, sérstaklega þegar senda þarf mannskap á staðinn, það skýrir töfina á þessu. Núna er unnið að viðgerð og vonandi gengur hún eins hratt og hægt er,“ segir Guðfinnur.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert