Bílvelta á Bústaðavegi

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Bílvelta varð á bústaðavegi um tíuleytið í morgun og er nú mikill viðbúnaður lögreglu, slökkviliðs og sjúkrabíla á staðnum, en atvikið átti sér stað til móts við verslunarkjarnann Grímsbæ.

Einn var í bílnum, sem er lítill fólksbíll, og hafði hann náð að koma sér af sjálfsdáðum út úr bílnum. Er maðurinn óslasaður að sögn slökkviliðs og verður því ekki fluttur á slysadeild til skoðunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert