Sex fengu 100 þúsund krónur

Lottó.
Lottó.

Enginn miðhafi var með allar tölur réttar í Lottó þegar dregið var út kvöld og verður potturinn því tvöfaldur í næstu viku.

Þrír miðaeigendur skiptu hins vegar með sér bónusvinningi kvöldsins og hlýtur hver um sig rúmlega 101 þúsund krónur. Tveir miðanna eru í áskrift en einn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.  

Tölur kvöldsins voru: 15, 16, 18, 29, 33 og bónustalan 9

Þrír voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fær hver um sig 100 þúsund krónur í vasann. Einn er í áskrift, einn var keyptur í Vitanum á Laugavegi 62 í Reykjavík og sá þriðji í Vídeómarkaðnum við Hamraborg í Kópavogi.

Jókertölur kvöldsins voru: 7, 4, 8, 5, 8

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert