Skjálfti af stærðinni 3,4 við Siglufjörð

Tilkynningar hafa borist um að skjálftans hafi orðið vart á …
Tilkynningar hafa borist um að skjálftans hafi orðið vart á Siglufirði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Jarðskjálfti af stærðinni 3,4 varð í nágrenni Siglufjarðar um klukkan eitt í nótt. Skjálftinn varð um 11 km norðvestur af Siglufirði að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.

Annar skjálfti sem var 2,0 að stærð hafði orðið á sama stað um hálftíma fyrr.

Tilkynningar eru sagðar hafa borist um íbúar á Siglufirði hafi orðið skjálftans varir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert