„Norðrið dregur sífellt fleiri að“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flytur ræðu sína í Edinborg.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flytur ræðu sína í Edinborg. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fór yfir í ræðu sinni á Hringborði norðurslóða, sem hófst í Edinborg í Skotlandi í dag, voru þær breytingar sem orðið hafa í norðrinu á undanliðnum áratugum og orðið til bættra lífshátta og aukinnar velmegunar.

„Norðrið dregur sífellt fleiri að. Í dag flytur fólk úr suðri til norðurs," sagði Guðlaugur meðal annars í ræðu sinni samkvæmt fréttatilkynningu. Rifjaði hann einnig upp samskipti Íslands og Skotlands sem standa á gömlum merg og verða sífellt nánari. Meðal annars á sviðum menntamála og ferðamennsku. Þá greindi ráðherra stuttlega frá undirbúningi fyrir formennsku Íslands í norðurskautsráðinu sem hefst árið 2019.

Guðlaugur átti jafnframt fund með Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, þar sem málefni norðurslóða og Brexit voru til umræðu. „Það er gott að vera Íslendingur í Skotlandi. Skotar hafa ávallt staðið okkur nærri og með tíðari samgöngum aukast tækifæri okkar til að efla samskiptin enn frekar, meðal annars í málefnum norðurslóða en einnig í viðskiptum, ferðamennsku, menntun og vísindum," sagði Guðlaugur ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert