Flateyrarvegi lokað – víða ófært

Flateyrarvegi hefur verið lokað.
Flateyrarvegi hefur verið lokað. mbl.is/Helgi Bjarnason

Snjóflóð féll á Flateyrarveg, nokkru fyrir innan Flateyri, fyrir rúmlega klukkustund. Veginum hefur verið lokað en auk þess er vegurinn um Súðavíkurhlíð enn lokaður.

Snjóflóðið á Flateyrarvegi lokaði veginum og Vegagerðin hefur ekki opnað hann. Samkvæmt lögreglunni á Vestfjörðum verður haft samráð við snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands um hvenær óhætt er að opna veginn.

Auk þess er ófært á Klettshálsi. Þungfært er á Gemlufallsheiði og í Súgandafirði og lokað vegna snjóflóða á Flateyrarvegi. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði og þungfært á Þröskuldum og í Ísafjarðardjúpi.  

Svona er staðan á Vestfjörðum þessa stundina. Rauðir vegir eru …
Svona er staðan á Vestfjörðum þessa stundina. Rauðir vegir eru ófærir. Ljósmynd/Vegagerðin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert