Gleymdi tönnunum á veitingastaðnum

Gervitennur. Sá sem skildi gervitennur sínar eftir á veitingastað í …
Gervitennur. Sá sem skildi gervitennur sínar eftir á veitingastað í Austurstræti í gær, getur vitjað þeirra hjá lögreglu. mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Veitingahús við Austurstræti í miðborginni óskaði eftir aðstoð lögreglu um hálfsjöleytið í gærkvöldi þar sem ölvaður viðskiptavinur hafði skilið gervitennur sínar eftir á borði veitingastaðarins er hann yfirgaf staðinn.

Lögreglan tók tennurnar með sér á brott og eru þær nú geymdar í óskilamunum lögreglu og þar getur eigandi tannanna vitjað þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert