54 sóttu um stöðu skrifstofustjóra menningarmála sem menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar auglýsti lausa til umsóknar í byrjun þessa mánaðar.
Meðal þeirra sem sóttu um stöðuna eru Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Norðurlandahússins í Færeyjum, en hún stýrði Höfuðborgarstofu á árabilinu 2007-2012, Marín Guðrún Hrafnsdóttir, verkefnastjóri og fyrv. deildarstjóri menningar- og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ, Lárus Vilhjálmsson leikhússtjóri og Ólöf Hulda Breiðfjörð, verkefnastjóri fræðslu- og kynningarmála Menningarhúsanna í Kópavogi.
Menningar- og ferðamálasvið fer með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg, en sviðið hefur yfirumsjón með starfsemi Borgarbókasafns Reykjavíkur, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Höfuðborgarstofu og Listasafns Reykjavíkur.
Þá hefur það einnig umsjón með málefnum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir hönd Reykjavíkurborgar, auk þess að sjá um samninga, styrki og samskipti við lista- og menningarlífið og er borgaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra.
Þau sem sóttu um stöðu skrifstofustjóra eru:
Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir, viðskiptafræðingur og ferðamálafræðingur
Agnar Jón Egilsson framkvæmdastjóri
Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningar- og markaðsstjóri
Ása Fanney Gestsdóttir menningarstjórnandi
Björg Jónsdóttir, verkefnastjóri MPM
Davíð Már Gunnarsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur
Edda Harðardóttir kennari
Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri viðburða og upplýsingafulltrúi CCP
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, MBA og ráðgjafi
Elísabet Hallbeck, löggiltur fasteignasali
Elísabet María Hafsteinsdóttir, ritstjóri og verkefnastjóri
Erla Dögg Grétarsdóttir ferðamálafræðingur
Gestur Örn Ákason viðskiptafræðingur
Guðríður S Sigurðardóttir, píanóleikari og MBA
Gunnar Ingi Gunnsteinsson skrifstofustjóri
Gunnar Kristinn Þórðarson stjórnsýslufræðingur
Hans Gústafsson, kerfisstjóri og ráðgjafi
Héðinn Sveinbjörnsson, fjármálastjóri og MBA
Ilmur Dögg Gísladóttir, kynningar- og viðburðastjóri
Íris Arnardóttir, BS. í þjóðfræði
Jóhann Sigurður Jóhannsson, stuðningsfulltrúi/mannfræðingur
Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir lögfræðingur
Jón Ingvar Bragason framkvæmdastjóri
Jóna Finnsdóttir framkvæmdastjóri
Karen María Jónsdóttir menningarstjórnandi
Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra
Katrín Johnson, mannfræðingur og listdansari
Kristín Pétursdóttir skrifstofustjóri
Lárus Vilhjálmsson, leikhússtjóri
Linda Lea Bogadóttir, markaðs- og menningarfulltrúi
María Rún Hafliðadóttir forstöðumaður
Marín Guðrún Hrafnsdóttir, verkefnastjóri og fyrv. deildarstjóri menningar- og ferðamála
Marta Nordal leikstjóri
Olga María Ólafsdóttir ferðamálafræðingur
Ólafur Þorsteinn Kjartansson viðskiptastjóri
Ólöf Hulda Breiðfjörð, verkefnastjóri fræðslu- og kynningarmála Menningarhúsanna í Kópavogi
Patricia Anna Þormar verkefnastjóri
Pétur Arnar Kristinsson hönnuður
Ragnheiður S. Kjartansdóttir verkefnastjóri
Salome Friðgeirsdóttir verkefnastjóri
Sif Gunnarsdóttir forstöðumaður
Sif Sigfúsdóttir, ráðgjafi og M.Sc. í mannauðsstjórnun
Sigfríður Björnsdóttir deildarstjóri
Sigmann Þórðarson myndlistarmaður
Sigrún Sigurðardóttir deildarstjóri
Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri
Sigurður Kaiser, sviðshönnuður og meistaranemi við Háskóla Íslands
Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, aðjunkt við Háskóla Íslands
Sóley Eiríksdóttir verkefnastjóri
Sólrún Sumarliðadóttir, tónlistarkona og MA í menningarstefnu og -stjórnun
Valgerður Árnadóttir framkvæmdastjóri
Vigfús Ingvarsson, nemi í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum
Þórmundur Jónatansson ráðgjafi
Þórunn Edda Magnúsdóttir tónleikahaldari