Engin útköll voru hjá björgunarsveitum í nótt, en óskað var eftir aðstoð björgunarsveitar á Austurlandi rétt fyrir klukkan sex í morgun til að losa bíla sem fastir voru á Fagradal til að snjóruðningstæki gætu komist rutt leiðina. Þetta segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.
Appelsínugul viðvörun Veðurstofu Íslands er í gildi á Vestfjörðum, Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Suðausturlandi, en norðan hvassviðri eða stormur verður á landinu í dag, með ofankomu um norðanvert landið og mjög hvössum vindhviðum undir Vatnajökli og víðar suðaustantil á landinu.
Hringveginum er lokað frá Markarfljóti að Vík, frá Skeiðarársandi að Höfn ásamt Djúpavogi að Þvottá og á Fagradal. Þá eru Mývatns og Möðrudalsöræfi lokuð, sem og Fróðárheiði á Snæfellsnesi, og hafa björgunarsveitir verið að sinna þeim verkefnum frá því í gær að sögn Davíðs.
Á vef Vegagerðarinnar segir ólíklegt sé að vegirnir verði opnaðir í dag og að búast megi við víðtækum lokunum á Vestfjörðum og Norður- og Austurlandi í dag.
Eru ferðalangar hvattir til að kynna sér vel færð á vegum hjá Vegagerðinni, veðurspár og viðvaranir áður en lagt er í hann.