Slógust fyrir utan búð

Rétt fyrir klukkan 13 í dag var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um slagsmál á milli tveggja karlmanna fyrir utan matvöruverslun í Kópavogi.

Lögreglan fór á vettvang og ræddi við málsaðila en til einhverra orðaskipta hafði komið á milli þeirra inni í versluninni með þeim afleiðingum að þeir fóru að slást.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert