Flugvirkjar funda vegna Icelandair

Frá upphafi fundarins hjá ríkissáttasemjara.
Frá upphafi fundarins hjá ríkissáttasemjara. mbl.is/Eggert

Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair hófst klukkan eitt hjá ríkissáttasemjara.

Flugvirkjar hjá Icelandair hafa boðað til verkfalls ótíma­bundið frá klukk­an 6 að morgni þann 17. des­em­ber.

Samningar þeirra við Icelandair losnuðu 31. ágúst og var kjaraviðræðunum vísað til ríkissáttasemjara 8. september. Síðan þá hefur verið fundað margsinnis, án árangurs.

mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert