Helga ráðin yfirritstjóri Birtíngs

Helga Arnardóttir.
Helga Arnardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Sjónvarpskonan Helga Arnardóttir hefur verið ráðin yfirritstjóri útgáfufélagsins Birtíngs, sem gefur út fríblaðið Mannlíf og tímaritin Gestgjafann, Hús og híbýli og Vikuna.

Helga mun ritstýra Mannlífi og hafa yfirumsjón með áframhaldandi stafrænni uppbyggingu en Birtíngur opnaði nýverið lífstílsvefinn mannlif.is, sem er sameiginlegur vefur allra miðla félagsins.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Helga mun starfa náið með núverandi ritstjórum tímarita Birtíngs, leiða aukið samstarf ritstjórna og marka ritstjórnarstefnu Mannlífs og mannlif.is. Fríblaðinu er dreift inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu og er aðgengilegt til niðurhals á vefnum.

„Ég hlakka til að hefja störf hjá Birtíngi og lít á það sem mikla áskorun að takast á við prentmiðla á þessum tímum og finna þeim tryggan farveg í síbreytilegu fjölmiðlaumhverfi,“ segir Helga í tilkynningunni.

„Það verður spennandi verkefni að leiða nokkur af vinsælustu tímaritum landsins inn á nýjar brautir í hinum stafræna heimi og koma með ferskt fríblað mánaðarlega um brýn samfélagsmál, sem varða okkur öll og málefni líðandi stundar.“

Helga hefur starfað í fréttaskýringaþættinum Kastljósi hjá Ríkisútvarpinu frá árinu 2014 og auk þess hefur hún framleitt og haft umsjón með heimildarþættinum Meinsærið sem fjallar um rangar sakargiftir í Geirfinnsmálinu og fjögurra þátta röð um leikferil Eddu Björgvinsdóttur leikkonu.

Helga starfaði í sjö ár á Stöð 2 sem fréttamaður í sjónvarpi og útvarpi, vaktstjóri, fréttaþulur og dagskrárgerðarmaður í Íslandi í dag. Á Stöð 2 hafði hún umsjón með þáttunum um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, Mannshvörf á Íslandi og Óupplýst lögreglumál. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert