Taka að sér nefndaformennsku

Stjórnarandstaðan hefur ákveðið að taka að sér formennsku í þeim þremur fastanefndum Alþingis sem ríkisstjórnin bauð fram, það er í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins, velferðarnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Stjórnarandstöðuflokkarnir funduðu um málið í morgun.

Þetta staðfestir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, í samtali við mbl.is. Miðflokkurinn tekur við formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd, Samfylkingin í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og Píratar í velferðarnefnd. Tveir síðarnefndu flokkarnir ætla hins vegar að skiptast á nefndarformennsku á miðju kjörtímabilinu.

„Við ákváðum að taka þessar nefndir sem ríkisstjórnarflokkarnir skömmtuðu okkur en við erum auðvitað ósátt við það að ekkert annað var til umræðu. Það var nóg af fögrum orðum en síðan bara orðin tóm. Við óskuðum eftir því að fá fjórðu nefndina eða fá að skipta á nefndum en það var ekki hægt.“

Ekki hefur verið gengið hins vegar endanlega frá formennsku í þremur alþjóðanefndum sem stjórnarandstöðunni býðst né tilnefningu hennar í ákveðin embætti varaformanna.

Gunnar Bragi Sveinsson.
Gunnar Bragi Sveinsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert