Löggutíst á laugardag

mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað „Löggutíst” fer fram á laugardaginn, að því er segir í fréttatilkynningu frá þremur lögregluembættum.

Í löggutístinu munu lögreglan á Norðurlandi eystra, lögreglan á Suðurnesjum og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessara lögregluliða frá því kl. 16 til kl. 04 á sunnudagsmorguninn.

Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru, segir í tilkynningu.

Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.

Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglanNE – það má einnig sjá hér www.twitter.com/logreglanNE

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan

Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á

https://twitter.com/sudurnespolice

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert