Lára Björg upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar

Lára Björg Björnsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar.
Lára Björg Björnsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Lára Björg Björnsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu þar sem hún verður með aðsetur.

Lára Björg er með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur hún starfað við almannatengsl og ráðgjöf, fyrst hjá KOM almannatengslum og síðar hjá eigin ráðgjafarfyrirtæki, Suðvestur.

Þá starfaði hún í utanríkisráðuneytinu og hjá fastanefnd Íslands hjá NATO á árunum 2002-2006. Hún var sérfræðingur í Landsbanka Íslands á árunum 2007-2009 og starfaði sem blaðamaður á Nýju lífi, Fréttablaðinu og Viðskiptablaðinu. Lára Björg er gift Tryggva Tryggvasyni, viðskiptafræðingi, og eiga þau fjögur börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert