Svandís styður átak kvenna í læknastétt

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra styður aðgerðir kvenna í læknastétt til að …
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra styður aðgerðir kvenna í læknastétt til að uppræta kynbundið áreiti, ofbeldi og mismunun í starfi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra styður aðgerðir kvenna í læknastétt til að uppræta kynbundið áreiti, ofbeldi og mismunun í starfi. Í fréttatilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að ráðherra hvetji konur og karla í heilbrigðisstéttum til að taka höndum saman og uppræta þennan alvarlega vanda.

Kveðst Svandís taka „heilshugar undir yfirlýsingu kvenna í læknastétt og geri eftirfarandi orð þeirra að“ sínum: „Kynbundið ofbeldi, áreiti og mismunun á ekki að líðast, hvorki á vinnustöðum né annars staðar í samfélaginu.“  Þá tekur ráðherra einnig undir mikilvægi þess að stjórnendur taki á þessum málum af festu og að til séu skýrir verkferlar til að bregðast við þegar á reynir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert