40 leikskólar af 62 fullmannaðir

Einungis á eftir að ráða í 2,17 prósent stöðugildi hjá …
Einungis á eftir að ráða í 2,17 prósent stöðugildi hjá leikskólum Reykjavíkur. mbl.is/Árni Sæberg

Í byrjun desember voru 40 af 62 leikskólum í Reykjavík fullmannaðir, en í 22 leikskóla vantar samanlagt rúmlega 30 starfsmenn, í flestum tilfellum í hálfa stöðu. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar, en upplýsingarnar eru fengnar úr könnun sem gerð var meðal stjórnenda í skóla og frístundastarfi borgarinnar.

Staðan er því betri nú en í nóvember því einungis eru 2,17 prósent stöðugilda í leikskólum borgarinnar ómönnuð ef miðað er við heildarfjölda þeirra, en fyrir mánuði átti eftir að ráða í 3,96 prósent stöðugildi.

Í lok september átti eftir að manna tæplega100 stöðugildi svo er ljóst að betur hefur gengið að ráða inn fólk síðustu vikurnar en snemma í haust.

Frá því í haust hafa alls 23 leikskólar af 62 leikskólum borgarinnar þurft að grípa til einhverra skerðinga á þjónustu vegna fáliðunar. Í lok september greindi mbl.is til dæmis frá því að ein deild væri lokuð á hverjum degi á leikskólanum Sunnufold í Grafarvogi vegna manneklu.

Á vef Reykjavíkurborgar segir að umfang skerðinga hafi verið afar mismunandi milli skóla bæði hvað varðar skertan opnunartíma og fjölda barna. Í sumum tilfellum hefur skerðingin náð til 3 til 5 barna en í öðrum tilfellum heillar deildar í senn. Í byrjun desember voru 12 leikskólar með skertan opnunartíma og í flestum tilvikum voru börnin sótt kl. 16.30 í stað 17.00.

Fresta þurfti inntöku fjölda barna á leikskólana í haust vegna manneklu, en í svari við fyrirspurn mbl.is um stöðuna í dag, segir að öll þessi börn séu nú komin með leikskólapláss, fyrir utan örfá í einn leikskóla. Þar þarf enn að grípa til skerðinga vegna fáliðunar og því hafa börnin ekki komist inn.

44 börn bíða eftir að komast inn á frístundaheimili

Staðan er einnig betri í grunnskólum borgarinnar, sem og á frístundaheimilum. Í 34 grunnskóla borgarinnar vantar þó enn 4 kennara, 6 stuðningsfulltrúa, 9 skólaliða og 2 starfsmenn í mötuneyti. Þetta er um 1,13 prósent allra stöðugilda í skólunum.

Á frístundaheimilin og í sértækar félagsmiðstöðvar vantar 70 starfsmenn í hálf störf, þar af 9 í störf með fötluðum börnum og ungmennum. Þriðjungur frístundaheimilanna eru fullmönnuð.

44 börn bíða því enn eftir því að komast inn á frístundaheimili. 6. desember 2017 hafði verið sótt um dvöl á frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum fyrir 4.309 börn, af þeim eru 4.253 komin með vistun og njóta börn með sérþarfir og yngstu börnin forgangs. Önnur eru tekin inn í samræmi við umsóknartíma, að fram kemur á vef Reykjavíkurborgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert