Geirmundur fær 18 mánaða dóm

Geirmundur Kristinsson er fyrr­ver­andi spari­sjóðsstjóri í Kefla­vík.
Geirmundur Kristinsson er fyrr­ver­andi spari­sjóðsstjóri í Kefla­vík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Geir­mund­ur Krist­ins­son­, fyrr­ver­andi spari­sjóðsstjóri Spari­sjóðsins í Kefla­vík, var í dag dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti fyrir umboðssvik. Þá var honum gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins og málsvarnarlaun verjanda síns, samtals 6,1 milljón.

Í dómi Hæstaréttar er meðal annars vísað til aldurs Geirmundar og að hann hafi ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þá er vísað til heilsufars Geirmundar og talið hæfilegt að skilorðsbinda alla refsingu hans.

Geir­mund­ur var ákærður fyr­ir umboðssvik með því að hafa mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum með lán­veit­ing­um til einka­hluta­fé­laga. Fjár­hæðirn­ar í ákær­unni nema tæp­um átta hundruð millj­ón­um króna. 

Í ákæru sagði að Geir­mund­ur hefði stefnt fé spari­sjóðsins í veru­lega hættu þegar hann fór út fyr­ir heim­ild­ir til lán­veit­inga með því að veita einka­hluta­fé­lag­inu Duggi 100 millj­óna króna yf­ir­drátt­ar­lán 16. júní 2008. Afstaða lána­nefnd­ar lá ekki fyr­ir og áhættu- og greiðslu­mat fór ekki fram. Þá var end­ur­greiðslan ekki tryggð með nokkr­um hætti.

Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að bersýnileg hætta hafi verið á því að lántakinn hefði enga burði til að standa skil á endurgreiðslu lánsins, enginn samningur hafi verið gerður um endurgreiðslu og engin trygging til staðar. Hafi það einnig farið svo að fjárhæðin glataðist sparisjóðnum að mestu leyti. Er það niðurstaða Hæstaréttar að Geirmundur hafi gerst sekur um umboðssvik, enda hafi háttsemi hans leitt til stórfelldrar fjártjónshættu fyrir Sparisjóð Keflavíkur.

Héraðsdómur Reykjaness hafði áður sýknað Geirmund af ákæru um umboðssvik í nóvember árið 2016, en í héraðsdómi fór ákæruvaldið fram á fjögurra ára fangelsisrefsingu. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar í byrjun janúar á þessu ári.

Í málflutningi fyrir Hæstarétti fór ákæruvaldið fram á tveggja ára fangelsisrefsingu í máli Geirmundar. Hefur krafa um refsingu í málinu því verið lækkuð um tvö ár frá því málið var tekið fyrir í héraðsdómi á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert