Myndavélin komst í réttar hendur á endanum

Brandon.
Brandon. Ljósmynd/Facebook

Þetta er hann Brandon, en hann var hér á landi í síðustu viku ásamt eiginkonu sinni. Þau lentu í því leiðindaatviki að farið var inn í bifreið þeirra, sem þau gleymdu að læsa á bifreiðastæði við hótelið sitt nóttina fyrir brottför.“ Þannig hefjast skrif lögreglunnar á Suðurnesjum á Facebook.

Dýrmætum ljósmyndabúnaði var stolið úr bíl Brandons og eiginkonu hans en þau höfðu gleymt að læsa bílnum. Búnaðurinn var metinn á tæpa milljón en auk þess voru þar margar myndir úr Evrópuferð hjónanna.

Lögreglan hafði upp á þjófnum, Brandon flaug síðan til Íslands í morgun til að sækja búnaðinn áður en hann fer af landi brott samdægurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert