Flugu með sjúkling til Reykjavíkur

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti sjúkling á Snæfellsnes í nótt sem þurfti að komast með hraði á sjúkrahús í Reykjavík.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafði lögreglan á Vesturlandi samband klukkan 23:45 og óskaði eftir aðstoð við flutning á sjúklingi á Landspítalann. Sjúkrabíll ók með sjúklinginn á móti þyrlunni sem sótti hann við Vegamót og lenti þyrlan við Landspítalann í Fossvogi um 1:30 í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert