Skemmdist illa í bruna

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Tilkynnt var um eld í nýlegri bifreið við Víkingsheimilið Fossvogi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Vegfarendur reyndu að slökkva með handslökkvitækjum en ekkert gekk fyrr en slökkvilið mætti á vettvang. 

Bifreiðin er mikið skemmd og gerði eigandi í samráði við tryggingafélag ráðstafanir varðandi bifreiðina, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og slökkviliði.

Slökkviliðið var einnig kallað út vegna elds í bílaleigubifreið á Bústaðavegi í gærkvöldi en í ljós kom að ekki hafði kviknað í bifreiðinni sjálfri heldur kúplingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert