Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) lýsir yfir vonbrigðum með nýútgefið fjárlagafrumvarp. Í þeim auknu fjárframlögum sem ætluð eru til að styrkja rekstur heilbrigðisþjónustu í landinu er litið framhjá heilbrigðisstofnuninni og í staðinn sett 20 milljóna króna hagræðingarkrafa á hana.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSN.
Starfssvæði HSN nær frá Blönduósi til Þórshafnar en íbúar á svæðinu eru rúmlega 35 þúsund. Samkvæmt lýðheilsuvísum landlæknis 2016 og 2017 eru marktækt fleiri íbúar á Norðurlandi sem meta bæði líkamlega og andlega heilsu sína slæma eða lélega samanborið við landsmeðaltal.
„Það er staðreynd að aðgengi íbúa á Norðurlandi að sérfræðiþjónustu lækna er mun minna en á höfuðborgarsvæðinu. Minni sérfræðiþjónusta eykur álag á heilsugæsluna og því er nauðsynlegt að efla heilsugæslu og alla þjónustu í kringum hana fyrir íbúa á svæðinu. Til þess þarf að veita aukna fjármuni m.a. til heimahjúkrunar og geðþjónustu og til að bæta aðgengi að læknum og öðru fagfólki,“ segir í tilkynningunni.
„Heilbrigðisstofnun Norðurlands skorar á heilbrigðisráðherra og þingmenn að bregðast við og sjá til þess að á Norðurlandi verði heilbrigðisþjónustan styrkt með auknum fjárframlögum eins og annars staðar.“