Von á rysjóttri tíð

Veðurstofa Íslands

Spáð er hægum vindi í dag, björtu veðri og köldu, en dálitlkum éljum norðaustantil fram eftir degi. Von er á rysjóttri tíð en um leið hlýnandi veðri.

Það er vetrarfærð nánast um allt land, hálka eða hálkublettir og snjóþekja á fáeinum vegum. Sjókoma eða él er á stöku stað á Norðurlandi en annars er víðast hvar úrkomulaust og stillt veður. Þæfingsfærð er á Hófaskarði og Öxi er ófær, segir á vef Vegagerðarinnar.

„Vaxandi suðaustanátt og hlýnar á morgun, 10-15 m/s og rigning eða slydda sunnan- og vestanlands síðdegis. Hægari og úrkomulítið á Norðausturlandi, en dálítil slydda eða snjókoma þar um kvöldið.

Suðvestan- og vestankaldi með lítilsháttar éljum á sunnudag, en léttir til á austanverðu landinu. Um kvöldið hvessir líklega af suðri, fyrst suðvestanlands. Í stuttu máli: víða bjart, stillt og kalt veður í dag, síðan rysjótt og mildara,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Spáin næstu daga

Norðlæg átt, víða 3-8 og bjartviðri í dag, en dálítil él NA-til fram eftir degi. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum.
Vaxandi suðaustanátt á morgun, 10-15 m/s með slyddu eða rigningu S- og V-lands síðdegis. Hægari og úrkomulítið NA-lands, en dálítil slydda eða snjókoma um kvöldið. Hlýnandi veður.

Á laugardag:

Vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s með slyddu eða rigningu og 0 til 5 stiga hita S- og V-lands síðdegis. Hægari vindur NA-til, dálítil slydda eða snjókoma með kvöldinu og hiti um frostmark. 

Á sunnudag:
Suðvestan og vestan 8-13 m/s. Léttskýjað á A-verðu landinu, annars él. Hiti kringum frostmark. Snýst í vaxandi SA-átt SV-lands um kvöldið. 

Á mánudag:
Sunnanátt og milt veður. Súld eða rigning, en úrkomulítið NA-lands. 

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðvestanátt með skúrum og síðar éljum, en þurrt á NA- og A-landi. 

Á fimmtudag:
Vestlæg átt og él, en bjartviðri A-lands. Frost 0 til 5 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert