Leita að næsta „fidget spinner“

Askasleikir hefur ekki farið úr lopapeysunni sinni í 432 ár, …
Askasleikir hefur ekki farið úr lopapeysunni sinni í 432 ár, enda engin þörf á því. Teikning/Brian Pilkington

„Við hörmum þá umræðu sem fram hefur farið undanfarna daga um störf okkar,“ segir í yfirlýsingu frá jólagjafaráði jólasveinanna sem send var á fjölmiðla í morgun. Jólagjafaráð er skipað fulltrúum jólasveinanna og sendir frá sér hugmyndir að gjöfum í skóinn fyrir hver jól.

Töluverðrar óánægju hefur gætt með störf ráðsins fyrir þessi jól. „Það er ekki hlaupið að því að spá fyrir hvað slær í gegn,“ segir ennfremur í tilkynningunni. „Hver hefði til dæmis spáð því að „fidget spinner“ yrði svona vinsæll?“

Hjálpargögnum dreift í Mósúl, Írak.
Hjálpargögnum dreift í Mósúl, Írak. Mynd/UNICEF

Athygli hefur vakið að jólasveinninn Askasleikir hefur virt tillögur jólagjafaráðs að vettugi. Þess í stað festi hann kaup á Sönnum gjöfum UNICEF eins og svo margir bræður hans og gaf í skóinn í nótt.

Mbl.is heldur samstarfi sínu við jólasveinana áfram og mun birta nýtt myndband í jóladagatali UNICEF á hverjum degi fram að jólum. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, berst fyrir réttindum allra barna á heimsvísu. Hægt er að kaupa gjafir sem bjarg­a lífi barna hér, til dæmis jarðhnetumaukog bólusetningar gegn mænusótt.

 

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert